Ég er komin til rvk og fjörið er strax byrjað! Kom heim og íbúðin var vibbi... Ég tók mig til og fór að þrífa. Ég var í heila 3 tíma að þrífa... Ha? Dugleg?
Svo þegar ég var búin að því þá langaði mig ekki til að skíta neitt út svo ég fór út í sjoppu og fékk mér að borða
Svo kom ég heim og ég ætlaði að halda mér vakandi allavega þangað til 23 af því ég þurfti að vakna snemma til að fara í akstursmat, segi ykkur þá sögu eftir smá, og í kringum 21 eða svo þá var ég að drepast úr þreytu. Ógeðslega erfitt að halda augunum opnum en ég gat það og svo loksins þegar ég ætlaði að fara að sofa var ég ekki þreytt lengur... Þoli ekki þegar þetta skeður! Samt lagði ég mig ekkert, ég bara komst yfir þreytuna og var ekkert þreytt!! En allavega, held ég hafi sofnað um 2 en var alltaf að vakna á 20 mínútna fresti til að líta á klukkuna til alveg 5 eða svo þá sofnaði ég alveg... Alveg til 8!! Ég bara frábært Helga, vertu aðeins meira stressaðri og sofðu bara ekki neitt!! Okei þá er komin nýr dagur og ég ákvað þá bara að fara á fætur og fara í kortabókina því ég þurfti að leita að stað sem ég vissi ekki hvar var... Hestháls... En ég fann það mjög fljótlega og fattaði fljótt leiðina þangað og þá hafði ég ekkert að gera og gat ekki sofnað aftur! Svo ég fór að mála mig og setti Friends í og svo var klukkan orðin 9:30 og ég nennti ekki að vera lengur heima svo ég lagði af stað. (Átti sko að vera mætt í akstursmat kl 11) Ég fór rólega þangað, var að æfa mig fyrir akstursmatið og keyrði á löglegum hraða og gaf alltaf stefnuljós og var með hendurnar á réttum stað og svona. Ég var mætt á svæðið kl 10. Ég gat ekki farið inn svona snemma svo ég rúntaði um. Skoðaði allar bílasölurnar, 2svar, rúntaði fram og til baka, stoppaði í sjoppu og fékk mér kók, tyggjó og opal, fór aftur að rúnta fram og til baka og gerði þetta í heilar 45 mínútur og ákvað svo loksins að fara bara inn og bíða. Ég fór inn, spurði konuna um tímann minn og hún sagði, ,,Sestu niður og slappaðu af!" Ég bara, ,,Var ég að æsa mig?" hugsaði ég
Okei ég sast niður og bara slappaði af. Ég bara hlýddi konunni, hún var svo æst eitthvað! Ég las blaðið. Svo datt kl í 11 og allir ökukennararnir löbbuðu inn og tóku alla nemendurna á rúntinn nema mig. Ég sat bara þarna og svo kom Rósi, ég sagði Hæ
Hann fór og ég sat þarna ennþá... Kl 11:30, sit hérna aðeins lengur, kl 11:45, ég sit ekki hérna lengur og fór til konu en samt ekki æstu konuna og spurði, ,,Ég átti að vera mætt hér kl 11 og ég hef sitið hér í 45 mínútur, fæ ég ekki tímann minn?" Konan vissi ekkert hvað ég væri að tala um og sagði mér að einhver hafi verið að gera at í mér og segja mér að koma þangað af því hér væri ekki hægt að taka akstursmat. Ég var alveg við að labba út í ógeðlsega mikilli fýlu og þá segi ég þessi Pétur sagði mér að koma hingað og hann ætlaði að taka mig í mat og þá segir hún, ,,Þessi heitir Pétur" Og hún spyr hann hvort hann viti eitthvað um þetta þá var hann búinn að gleyma mér! Og baðst afsökunar og sagði við mig að ég myndi skutla þessum dreng heim með hann í bílnum og þá væri akstursmatið búið. Ég bara okei! Svo lögðum við að stað og ég keyrði svo frábærlega
Hann sagði við mig að ég væri frábær driver og var svo alltaf að segja þið austfirsku fegurðardísar getið allt
HAHAHAH... Hann var frá Egs
Jæja þessi saga var löng... Það les hana pottþétt enginn en maður verður stundum bara að koma þessu út og þá líður manni betur. Er það ekki tilgangurinn í þessum bloggum? Ég bara spyr...
XoXo
Helga